Ég er kóngurinn
I like to be there when I can
02.11.2008 23:23:27 / bongo

Halló

Var klukkaður og verð við því að sjálfsögðu. 


Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina :


Lögga

Sjóari
Beitningamaður
Fangavörður


Fjórar Kvikmyndir sem ég held upp á :

Pink Panther (allar)
Apocolypse now (snilldin ein)
Young Frankenstein
Englar alheimsins


Fjórir Staðir sem ég hef búið á:

Selfoss

Eyrarbakki
Ísafjörður
Fjáskrúðsfjörður

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar :

Dagvaktin
Benny Hill show (gaman að horfa á með afa Adda)
Alo alo
Rome

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum :

Veiðivötn
Vestmannaeyjar:)
London
Fáskrúðsfjörður (langt síðan síðast)

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg :

Soccernet.com
mbl.is
logreglan.is
ljonid.blogspot.com

Fernt sem ég held uppá matarkyns :

Svið
Lambahryggur
Kjötsúpan hennar Lilju
harðfiskur

Fjórar bækur sem ég les oft

Tinni
Tinni
Tinni
Tinni (við Hrafnkell saman)


Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna

Veiðivötn
Sumarbústað ´Verslunarmann á Flúðum
Rómantískri göngu í París
Old Trafford

Þar hafið þið það, er bara nokkuð brattur og engin kreppa í mér. 




» 5 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 22:04:54 / bongo

Hér hefurðu það Tóta

Ég má ekkert vera að þessu en langar að botna sögu sem Tóta systir var að viðra.  Björgvin hét maður og var kenndur við bæinn Kappeyri.  Við Björgvin unnum saman í salthúsinu þegar ég var unglingur og hann komin á áttræðis aldur, ég hafði frekar gaman af því að hneyksla gamla manninn en það var fátt sem haggaði karlinum.  Einhver tímann var karl álkan að beygja sig eftir einhverju þá dúndraði ég á hann " Bjöggi á ég að xxxx þér í xxxxxxxx" gamli var fljótur til og sagð he hann nær ekki inn.  Annars bara góður bara of mikið að gera.  later bæ

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 05:30:25 / bongo

Klukk

Heyrðu ég er meðal lifenda og var víst klukkaður eða kuklaður, best að láta vaða. Ég er í eðli mínu lífsglaður og kátur, þarf þó oft að nota báðar hendur til að hemja skap mitt. Hef væga snertu af þráhyggju en þykir vænt um hana, veiði veiði veiði. Ég er alltaf svangur, allavega ef eitthvað gott er í boði. Þoli ekki meðalmennsku en er algjör kótilettukarl og meðaljón. Vil vaka á nóttinni og sofa á morgnana og helst heyra kliðinn í grislingunum í gegnum móðuna. Get ekki hugsað mér lífið án tónlistar, tæmi hugann og næri sálina þegar ég spila á trommurnar mínar.  Verð að eiga betri helming annars er ég alveg tíndur, og börn börn börn. Er mikil tilfynningavera en get slökkt á þeim þegar það á við, þarf víst að læra að tjá þær hehe. Get verið fljótfær og trúi einlæglega að góðir hlutir gerist hratt og ákveðið. Sleppi mér gjörsamlega þegar Manchester er í kassanum og skammast mín ekkert fyrir það (Amma er löngu búin að fyrirgefa mér þetta með kristalsvasann). Veit hvert ég stefni og gleymi aldrei hvaðan ég kem, and thats that. P.s Abraham Lincon sagði að flestir væru eins hamingjusamir og þeir einsettu sér að vera, held að hann hafi hitt naglan á höfuðið. Hey Skúli þú ert klukkaður ekki klikkaður  

» 14 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 17:52:46 / bongo

Opið bréf til Skúla frænda

 

Við erum alltaf að mæla allstaðar hehehe


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 19:05:09 / bongo

Babú

Jæja elskurnar þá er ég búin að taka tvær vaktir í lögguni og verð að segja að þetta er bara nokkuð spennandi.  Byrjaði á næturvakt á laugardagskvöld og bjóst nú við hasar en þetta var í rólegri kantinum.  það tók mig ekki nema nokkra tíma að átta mig á að þetta er mikið fjölbreyttara starf en fangavarslan og þó er ég lítið búin að sjá í starfinu.  Eitt get ég þó sagt það voru mikil mistök að leyfa fjórhjól á götunum og það er ekkert að unglingunum það eru foreldrarnir sem eru fífl.  Jæja hvað um það breitingar eru góðar og ég er á fullu í þeim.

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 00:47:43 / bongo

Afhjúpun leyndardómsins

Jæja nokkuð merkilegur dagur og viðburðaríkur. Fór með uppsagnarbréf á Hraunið og kominn með vinnu í Selfoss löggunni í sumar. Forsaga málsins er að ég sótti um  í Lögregluskólanum svona í gríni en kennarar Lögregluskólans skoruðu á mig að gera það, þeir hafa sennilega áttað sig á hvað ég var orðin leiður á hælinu. 2 dögum eftir að ég sendi inn umsóknina fæ ég hringingu frá lögguni á selfossi og er boðin vinna með meðmælum frá formanni valnefndar Lögregluskólans og allt var þetta án minnar vitundar.  'Eg læddist síðan í inntökuprófið fyrir viku eða svo og negldi það með glans, 6-7 tíma próf ekkert smá langt, nú er ég bara að bíða eftir viðtali við valnefnd en hún sker úr um hvort ég fái inngöngu.  Þar hafið þið leyndóið en kanski er þetta djarft hjá okkur, að kaupa hús og skipta um vinnu á samatíma svo ekki sé minnst á launalaust nám í 3 mánuði ég hlýt að vera geggjaður eða hvað.  Kl er 00.40 og ég á leið í bað alsæll og mikið ánægður með mig.  Nú svo var konan mín búin að heita á mig verðlaunum ef ég næði öllum prófum og þar með talið inntökuprófinu, þannig að hálfur-heill er orðin staðreynd jeeeeee.  Lifið heil.

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 18:37:53 / bongo

Gamlir hippar í fomi

Deep Purple jájá allt í góðu með gömlu skápana, þetta voru fínir tónleikar og alveg magnað að heyra perfect strangers hljóma þétt og agað og ég fékk geggjaða gæsahúð .  Það er ekki laust við að ég hafi hugsað aftur til unglingsáranna þar sem ég eyddi löngum stundum í að hlusta á þessa kappa með Bergþóri Frissa.  Það kom yfir mig saknaðar tilfynning til Bergþórs, ég hef ekki hitt hann mjög lengi en hann er mér alltaf jafn kær fyrir það.  Það er alveg magnað að geta upplifað svona góða tónleika með Lilju minni en við höfum svipaðan smekk fyrir tónlist og höfum séð marga flotta tónleika þó ég hafi klúðrað Louie Reed eins og frægt er orðið.  Ég held þó að Roger Waters tónleikarnir standi upp úr og Robert Plant þar á eftir.  Nú þarf ég bara að sjá Chilly Peppers og þá get ég dáið sæll og glaður.  Jæja þetta er ágæt en vonandi  get ég skírt frá leyndóinu á morgun.  Góðar stundir.


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 14:28:40 / bongo

Engar áhyggjur

Ég verð að viðurkenna að síðasta blogg var einkennilegt, var að færa setningar en þær hafa endað á vitlausum stöðum hehe.  Annars er ég hrikalega kátur í dag en get ekki sagt af hverju, það er algjört leyndó sko.  Við hjónin erum að kaupa hús og það virðist ætla að ganga þó ætla ég ekki að fagna fyrr en það er frágengið.  Mig hlakkar óvenju mikið til þessa sumars það er bara svo margt spennandi við það en samt er ég ekki að hugsa neitt mikið um veiði, allavega ekki óvenju mikið en Lilja ætlar að koma með mér að veiða og er líka búin að stofna veiðifélag fyrir alla sem nenna að veiða með börnum og gamalmennum (pabbi hehe) en það er jú stefnan hjá mér að fara mikið með krakkana mína.  Við erum þar og þegar búin að fara einu sinni í Vífilstaðavatn og það var æði,  Kata mín er efni í mikinn veiðimann (konu) og Júlía orðin það fyrir löngu.  Hér er svo lausn fyrir alla kvíðasjúklinga, Þetta er kenning eftir danskan heimspeking sem ég man ekki hvað heitir en köllum hann bara Rassmus.  Rassmus þjáðist af þunglyndi og miklum kvíða karl uglan en hann setti síðan fram þessa kenningu eftir langa baráttu.  Fyrst þarf að skilgreyna hvað kvíði er, kvíði er óttatilfynning sem kemur yfirleitt út af óvissu eða einhverju sem við vitum ekki hvernig endar eða er í eðli sínu.  Ef ég meiði mig á t.d hníf er líklegt að ég fynni einhverja óttatilfynningu næst þegar ég nota hnífinn en það er ekki kvíði heldur hræðsla við það sem ég veit að er hættulegt.  Segjum sem svo að ég væri að skipta um vinnu, við þær aðstæður fynna margir til kvíða enda vita þeir ekki hvernig þeim mun reiða af í henni.  Þetta er sem sagt ótti við hið óþekkta = kvíði. Rassmus komst að þeirri niðurstöðu að úr því kvíði væri ótti við hið óþekkta eða hluti sem ekki hafa gerst  værum við í raun hrædd við ekki neitt, þ.e.a.s eitthvað sem hefur ekki gerst, og mun í lang flestum tilfellum fara á annan veg en við óttuðums í upphafi.  Þar hafið þið það og verði ykkur að góðu.  Ég blogga næst þegar ég get flett ofan af leindóinu.  Over n out   og Lilja mundu hálfur-heill hehehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 07:45:09 / bongo

Júú ég er lifandi

 Loksins búin með próf ruglið eða næstum því allavega,   ég get ekki sagt að mig langi til að ver hérna lengur en a man got to do what a man got to do.  Er enn að bíða eftir svari úr einu prófi en náði hinum kvikindunum þó, þetta var anskoti mikill strekkur þar sem prófin úr báðum skólum bar upp á sömu daga en sannur íslendingur að ég hef ekki funndið tíma til að blogga eftir áramótin.  Byrjaður á hælinu en get ekki segi ÞETTA REDDAST.   Jæja meira síðar.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 00:50:16 / bongo

Óráð

Lygg með hita get ekki farið neitt ekki lært og lítið hugsað.  þá er loks tími til að blogga.  Búið að vera geggjað að gera í öllu þessu námi.  Mikið fjör í gær en þá steig bandið ´stokk í fyrsta sinn og það gékk nokkuð vel þrátt fyrir tæknileg vandamál (gott ráð að sé maður með leigu box ath hvort síðasti notandi skilaði íheilu lagi hehe) það var mikið dansað og vel látið af bandinu það var ekki óska staðan að vera veikur að spila en ekki hægt að blása af á síðustu stundu.  Ég var búin að lofa heimspekikenningum og svo sem ekkert því til fyrirstöðu Mundi vinur minn hefur líka komið með nokkrar. Gefum skít í Aristóteles og bregðum okkur í eigin pælingar. Mér er spurn " þegar öllu er á botninn hvolt" er þá allt á hvolfi eða er allt í góðum málum? Nú Mundi er að velta fyrir sérhvort það sé kaffitími í teverksmiðju?  Svo er það stóra gátan. Ef maður með multiply personality hótar sjálfmorði er það þá gíslataka? og ef hann lætur af því verða er það þá morð eða sjálfsmorð? og hana nú held ég sé með óráði góða nott

» 10 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 20:33:39 / bongo

Skólinn skólinn

Halló allir long time ekkert bull.  Ég hef verið upptekinn en í þetta skiptið ekki við að safna skeggi.  Skólarnir byrjaðir og allt á fullu swingi. Við Hjónin skelltum okkur nefnilega í fjarnám þannig að ég þarf að vera á tánum við að sinna öllu þessu námi, fangavarðaskólinn,fjarnám í vma og svo tónskólinn að sjálfsögðu. Það er nú helst að frétta að ég er í fitun og þarf að éta á 2 tíma fresti og lifta og djöflast eins og ég get hehe gaman af því,markmiðið er að verða 185cm og 90 kíló í vor eða 178cm og 82 kíló en það vantar 5 kíló upp á það. Ég hef fundið köllun mína í lífinu ég er í heimspeki og það á nú vel við mig hehe nei svona í alvöru mjög skemmtilegur og fræðandi áfangi. Hei Malla hvað er slóðin á síðuna þína ég eyddi óvart meilinu frá þér. Það verður nú ekki mikið bloggað á næstuni þar sem við Lilja þurfum að skiptast á við að læra í tölvunni á kvöldin en ég ætla að læða einum og einum gullmola úr heimspeki bókinni við og við.  

 

Lifið heil


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 01:45:47 / bongo

Völva Björns Emils

Jæja er að rífa mig upp úr tölvu fælni, Jólin voru notó á mínu heimili allir glaðir og ég veikur,en var bara hinn kátasti fyrir því. Ég fékk magnaðar gjafir, Lilja gaf mér æðislegt úr en ég hef ekki gengið með slíkan grip árum saman. Nú svo er það markabolurinn já börnin gáfu mér nýju man united treyjuna og ég fer í hana með viðhöfn og horfi á snyllingana spila en það eru kominn 13 mörk á hana frá þvi á annan í jólum og hefur hún fengið nafnið markabolurinn á mínu heimili.  Eftir nokkra daga sest ég á skólabekk og það er góð hvíld frá hælinu. Við hjónin töpuðum okkur í húsnæðispælingum en það verður ekki að sinni en það er bara svo vont að hætta að láta sig langa í eitthvað þegar maður er kominn á flug. Þarf tilfynnanlega að fara að hlaupa og lyfta er kominn með síðuspik og það á bara ekki við mig hehe. Annars þarf ég að æfa á hverjum degi í skólanum og verð fljótur að komast í form. Ég ætla að þyngja mig um 5 kíló í vetur en það virkar ekki nema með liftingum,ég hef marg oft reynt að þyngja mig með majónesáti og er nátturulega með matarfíkn en það virkar ekkert. Hér er smá völvuspá frá mér , ég spá því að dagur og nótt skiptist á að koma og fara næstu 365 dagana og mun sjást til sólar í sumar en þó mun rigna við og við og svo mun ég veiða hrikalega marga og ógurlega stóra urriða í sumar. En best að geyma veiði pælingar þar til í vor því það veldur alltaf dálítilli togstreitu á heimilinu það er vandrataður gullni meðalvegurinn í þeim efnum. Jæja ég óska ykkur sem rambið hér inn gleðilegs árs og megið þið fynna það sem þið leitið að á árinu.


» 20 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 01:44:25 / bongo

völva Björns Emils

Jæja er að rífa mig upp úr tölvu fælni, Jólin voru notó á mínu heimili allir glaðir og ég veikur,en var bara hinn kátasti fyrir því. Ég fékk magnaðar gjafir, Lilja gaf mér æðislegt úr en ég hef ekki gengið með slíkan grip árum saman. Nú svo er það markabolurinn já börnin gáfu mér nýju man united treyjuna og ég fer í hana með viðhöfn og horfi á snyllingana spila en það eru kominn 13 mörk á hana frá þvi á annan í jólum og hefur hún fengið nafnið markabolurinn á mínu heimili.  Eftir nokkra daga sest ég á skólabekk og það er góð hvíld frá hælinu. Við hjónin töpuðum okkur í húsnæðispælingum en það verður ekki að sinni en það er bara svo vont að hætta að láta sig langa í eitthvað þegar maður er kominn á flug. Þarf tilfynnanlega að fara að hlaupa og lyfta er kominn með síðuspik og það á bara ekki við mig hehe. Annars þarf ég að æfa á hverjum degi í skólanum og verð fljótur að komast í form. Ég ætla að þyngja mig um 5 kíló í vetur en það virkar ekki nema með liftingum,ég hef marg oft reynt að þyngja mig með majónesáti og er nátturulega með matarfíkn en það virkar ekkert. Hér er smá völvuspá frá mér , ég spá því að dagur og nótt skiptist á að koma og fara næstu 365 dagana og mun sjást til sólar í sumar en þó mun rigna við og við og svo mun ég veiða hrikalega marga og ógurlega stóra urriða í sumar. En best að geyma veiði pælingar þar til í vor því það veldur alltaf dálítilli togstreitu á heimilinu það er vandrataður gullni meðalvegurinn í þeim efnum. Jæja ég óska ykkur sem rambið hér inn gleðilegs árs og megið þið fynna það sem þið leitið að á árinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 23:33:46 / bongo

Er sælla að gefa en þyggja?

  Ég var að spegulera. Undanfarið hefur verið söfnunarherferð í gangi varðandi sveltandi og stríðshrjáð börn í Afríku og öðrum hrjáðum svæðum.  Á minni stuttu æfi hef ég lifað margar svona safnanir og viðurkenni ég að þær hafa ekki náð að hreyfa alvarlega við mér þó ég hafi oft gefið einhverja hundraðkalla til að friða samviskuna, ég veit ekki hvort ég hafi verið svona kaldlyndur eða sinnulaus enda skiptir það ekki máli.  Í þetta skipti er þessu öðruvísi farið hugsunin um þessi börn lætur mig ekki í friði og mig langar til að gerast svo kallað heimsforeldri en þá stirkir maður sama barnið þar til það verður sjálfbjarga.  Það eru margir fletir á þessu hjálparstarfi sem dæmi má velta því fyrir sér hvers vegna þessar stóru safnanir fara alltaf fram rétt fyrir jól, mitt svar við því er að þá geta neyslu brjálaðir vesturlandabúar eitt formúgu í jólin með góðri samvisku svo fremi að þeir hafi hennt nokkrum krónum í söfnunarbaukinn handa veslingunum sem ekki hafa vit til að bjarga sér sjálfir. Ég tala auðvitað bara út frá eiginn gjörðum en hef grun um að fleiri geti tekið þetta til sín.  Við vorum að ræða þetta hjónin og hún Lilja mín bennti á góðan púnkt, við eru alltaf að safna handa þessu fólki en á sama tíma borgum við þeim skít og ekkert fyrir þær útfluttnings vörur sem þeir byggja afkomu og efnahagskerfi sín á. Gaman væri að vita hvað sá sem tínir banana í afríku fær borgað fyrir kílóið eða kaffi baunirnar en Lilja kynnti sér þetta fyrir mörgum árum og þarna er hundurinn grafinn það eru feitir höndlarar á vesturlöndum sem sjá allan gróðan en ekki framleiðundirnir.  Ég fór með henni júlíu minni að selja friðarljós fyrir hjálparstarf kirkjunar í gær kvöldi, skemmtilegur göngutúr með frábærri stelpu en það var ansi gaman að heyra afsakanirnar sem fólk gaf fyrir að vilja ekki gefa t.d ég á bara engan pening núna mig langaði að segja hvað ertu þá að gera með bæði landkrúser og sportbíl út á hlaði en að sjálfsögðu gerði ég það ekki því þetta hef ég oft sagt sjálfur gegn betri vitund.  Það er nú líka svo að engum er skylt að gefa og engin ætti að teljast verri fyrir að segja nei.  Nyðurstaðan er sú að ég ætla að gefa smá um hver mánaðarmót og ganga þannig frá því að ég þurfi ekki að eiga í rökræðum við litla púkan sem situr á öxlini á mér og segir að ég geti nú slept þessu í þetta skiptið, það er nefnilega hægt að láta þetta fara sjálfvirkt út að reikningnum mánaðarlega.

 Annars er ég bara brattur líf og fjör á heimilinu, krummi minn strauar um allt og át bjúgu með öðrum meðlimum fjölskyldunar í kvöld. Það er svo mikil músík í honum hann dillar sér í hvert sinn sem hann heyrir tóna en Elvis er í algjöru uppáhaldi hjá honum. Katrín mikla hleypir eingum út úr húsi nema borga sér tvo kossa og vara svo fólk við að láta ekki fuglana éta utan af sér fötinn hvaðan sem hún hefur það nú hehe.  Jæja gott í kvöld lifið heil.


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 00:36:29 / bongo

jóla lánin taka 2

 Jæja loksins tími til að blogg,þær eru ekki alveg ónýtar næturvaktirnar. Hef verið í smá vinnutörn og ekki haft tíma til að miðla af visku minni en here goes. Ég vil kvetja fólk til að vinna yfir sig svo það geti keypt flott jól þetta árið, ekkert má vanta annars bara koma ekki jólin eins og við vitum. Nei nei bara smá ámynning mér sjálfum til handa enda of oft brent mig á vinnu öfgum og vanrækt fjölskylduna fyrir vikið. En það fór um mig dásamleg tifynning í dag ég var að átta mig á að eftir örfáa daga fer ég í restina af fæðingarorðlofinu og verð heima um jólinn. Síðustu jól voru lærdómsrík ég hafði ný látið af jóla mótþróa (vildi ekki fara í jólaskap fyrr en á aðfangadag) naut þess að taka þátt í undirbúningi af bestu getu og hafði gaman af, en jólunum eiddi ég svo öllum innan múrana en þar er erfitt að vera í jóla skapi. Það er ekki laust við að ég beri mikla virðingu fyrir þeim drengjum sem hér dvelja nauðugir árum saman og tekst að halda sönsum um hátíðarnar, þeir eins og ég eiga ástvini  börn eiginkonur foreldra sem óneitanlega er ömulegt að vera fjarri á hátíðum. Ég hef sjaldan verið jafn fegin að komast heim eins og þá. jæja þá er bara að athuga hvort bankarnir bjóði ekki upp á jóla lán Lifið heil


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3